...Elliša Bók
Žrišja Lżšveldiš / Endurreisn nśmer 3+Elliši Jónsson
Gott kvöld, svona miðnætursblogg áður en ég þarf að sofna.Ég sé að þótt það séu liðnir 5 mánuðir síðan ég bloggaði síðast, er ennþá einhver/jir sem skoða þessa síðu ennþá(Kannski útaf eilífri bið eftir blogginu sem kemur aldrei, eða bara bíða eftir að geta spammað eins og þrossar). En ég get svo sem get báðum þessum hópum til geðs og bloggað eitt lítið og saklaust blogg.
En ég ætla að nota tækifærið og þakka Ísfirðingum fyrir að gera mér grein fyrir því að ég ætla aldrei aftur þangað. Þessir krakkar hafa sýnt óeðlilegan þroska þegar þeir baktala mig og hunsa eins og ég sé ekki þarna(sem ég var um páskana). Einnig hafa þeir sýnt mér það að lífið í borginni er 10 sinnum betra en þarna fyrir vestan(á alveg von á einhverju leiðindar spammi eftir þetta blogg, en so be it).
En nóg af þessu, snúum okkur að einhverju skemmtilegu. Síðan ég bloggaði síðast hefur nú andskoti margt gerst hjá mér, ég kláraði annað árið mitt í FÁ, byrjaði í ökuskólanum, kláraði ökuskólann, náði bílprófinu með stæl, keypti mér þennan eðal kagga(Renault Mégan Berline) árgerð 1997, og keyrður eitthvað x marga kílómetra *flautar sakleysislega*. Sannakallaður gellusegull...
Ég er byrjaður í fullri sumarvinnu í póstinum, oh the sweet job, og er á glænýjum vinnutíma, því í staðinn fyrir 12:00 til 20:00 er ég kominn á Dadadadarraaaaa...11:00 til 19:15. Breytingarnar eru því all svaðalegar. Bara himin og haf sem skilur þetta að, kæmi heilu syndarflóði þarna á milli + eitt stykki örk.
En ég ætla að segja þetta gott í kvöld/nótt, kem með góðan annáll á morgum/í dag.
Þangað til næst,
Ciaó
Hęttur ķ skóla!!!Elliši Jónsson
Nei, hahaha...got you there, mamma myndi aldrei leifa mér að hugsa um það. "Mennt er máttur" hefur hún alltaf sagt..well...hún hefur ekki hitt Chuck Norris, en mottóið hjá honum er "Chuck Norris er máttur".En annars hef ég bara ekki verið að standa mig, engann veginn. Komnir 6 dagar síðan að ég nennti síðast að blogga, en ég ætlaði í alvörunni að blogga um helgina...og í gær...og fyrradag. En maður grætur ekki yfir gömlum syndum, nema gömlum ósyndu fólki í sundi*flissar*. Þannig að ég tel það vera ógeðslega kúl hjá mér núna að blogga, til að sýna að ég hef þrekið og agann til að gera þetta...eða gera þetta semi. Ég er svona semi-bloggari.
En svo vill ég óska EmmÍ-ingum til hamingju með rústið á Iðnó í hafnarfirði, en staðan var 20-2 þegar Sigmundur Ernir ákvað að hlífa Iðnóingum fyrir meiri niðurlægingu. Jóhann og Halldór fóru á hamförum, og sérstaklega Dóri þegar hann sagði "Mamma er mikill Duran Duran aðdáandi og þess vegna segi ég James LeBon." Svona til að vera ekki einn af þeim sem eru að leggja aðra í einelti á bloggsíðum, þá er rétta svarið Simon LeBon. Ekki James eða Jacob.
En annars er ekkert merkilegt búið að gerast í mínu auðmjúka lífi eða skólanum, er reyndar allur að venjast nýju tímunum og kennurnunum og svoleiðis, en það gengur bara vel...enda engin Danska né stærðfræði - enda er ég BÚINN MEÐ ÞAÐ HELVÍTI. Þarf aldrei að taka þetta aftur, aldrei! En mér finnst samt líklegt að ég taki Stæ403 einhverntímann og Dan303, bara svona uppá fönnið, svona show-off af minni hálfu.
En ég held að málið sé bara svefn, svef, svefn.. ég hef nánast ekkert sofið síðustu nætur, og það er byrjað að taka sinn toll á skólanum...sofnaði til dæmis í íslensku, enda er íslensk bókmenntasaga frá 1500-1900 einstaklega spennandi.
Þangað til næst,
bless bless
Tjugg tjuggElliši Jónsson
JáÞá er þessi vinnuvika loksins að vera búin(fyrir mig því að ég þarf ekki að vinna á morgun...hahahahahahahahaahaha...hí á ykkur) og þá tekur helgin við. Eilíft djamm og fjör hjá mér. Eða ekki.
En ég vaknaði í morgun við minn fallega og saklausa síma(sem ég mun að eilífu hata fyrir að hafa vakið mig) og hinumeginn hljómaði:
,,Elliði, hvar ertu?" Ég lít í kringum mig í myrkrinu og hugsa..hvar er ég í andskotanum? ,,Ég er fram á gangi." Ég er með mikinn svefngalsa þegar ég átta mig loksins á þessu að þetta er ekkert grín. Það var manneskja bíðandi eftir mér á ganginum...how creepy is that? Sat í myrkrinu og beið, beið eins og rándýr eftir mér.
Ég fór svo í skólann til að ná í stundartöfluna, og í fyrsta skiptið þurfti ég að andmæla yfirvaldinu og segja því að troða henni þar sem sólin skín ekki - já, ég er að tala um innuna, því ég þurfti að láta gera breytingar á henni...Sag313, ekki Sag303. Muna það, þetta er svona eins og að skeina sér með hægri, 303 er verra en 313. Annars var hún bara nokkuð góð, allavega skömminni skárri en stundataflan í fyrra - vúúú...það var one pice of shit.
Kynnumst Íslenskunni:
Orðið sem ég ætla að minnast á í dag er Lesbók. Já, þið hafði örruglega verið að velta því fyrir ykkur, hvað er Lesbók. Það er einfalt, því þegar Ísland var orðið frjálslynt og allir voru velkomnir kom hópur af gríksum nunnum hingað til lands. Þær kölluðus Lesbos heima hjá sér, en ísland er frjálslynt, en ekki það. Mannanafnanefnd var ósammála þessu og stakk uppá að þær myndi kalla sig Lesbók. Þær tóku svo þrusuvel í þetta, og ákváðu að gefa úr rit til að fagna þessu, og það hét "Lesbók" - eða "Nunnurnar frá Grikklandi".
-á morgun verður tekið fyrir orðið " Hringur"
En eins og ég kom að áðan, þá verð ég heima. En það þýðir ekki að þetta verði eitthvað letilíf, nei...alls ekki. Ég ætla að lesa eins og MoFo og svo þarf að fara að huga að bókarkaupum, en skólinn er óvenju illur þessa önnina. Ég á alveg eins von á að taskan mín muni vega 20-30 kíló, eða lítinn afríkubúa. Kannski ætti maður bara að flytja í skólann, þá þarf maður allavega ekki að bera helvítið alla þessa leið, pæling.
En þangað til næst,
Bless bless
At the end of the snack tableElliši Jónsson
Já(svona munu öll bloggin mín byrja).Ég ætla nú að byrja á því að biðja Agnesi afsökunnar á þessari ruddalegu framkomu minni, en ég staðhæfði það að engi læsi þetta nema ég og Arnór, en að sjálfsögðu kemur Agnes sterk inn með sitt jiblum-babb í athugasemdunum. Merkilegt hvað mikið afl kemur úr svona lítilli döm...uuu...
Annars ætla ég að minnast aðeins á orðið hræsni(ekki blanda á milli asna og hænsna). Segjum svo að maður X hefur vaknað reglulega eldsnemma á morgnana til að fara í hópíþrótt, því að aðrir tímar þóknast ekki Y sem er líka í hópnum. X sefur lítið á næturnar vegna svefleysis en lætur 4-5 tíma nægja sér og er alltaf mættur ferskur á morganan. Svo fær hann skilaboð eftir eina andvökunóttina frá Y þar sem hann segist þurfa að sofa út(aww...vesalings dúllan), en X stendur í stigaganginu með göngustafinn í hendinni, vaknaður og þreyttur. Það er alltaf Y-leiðin eða engin leið. En eins og ég sagði, þetta er gott dæmi um hræsni.
-Á morgun verður tekið fyrir orðið Lesbók(þetta er liður í liðnum "Kynnumst íslenskum orðum")
Annars mætti ég ferskur í vinnuna(takið eftir þessu, ég er alltaf ferskur þegar ég mæti í vinnuna) og sá þá, mér til mikils hryllings, að það var nánast enginn í vinnunni, en pósturinn tekur ekkert mark á því. Þannig að það var dálítið mikið að gera í dag, en ég hef fengið mikla gagnrýni frá sumum aðilum um að ég vinni ekkert. Og það er stundum bara rétt
En ég var að skoða skólaspjaldið mitt frá því úr 10.bekk(ég lít út eins og durgur sem var fenginn á slæmum degi til að stilla mig upp fyrir myndartöku) og fattaði þá að ég þekki ekki helmingin af þessu fólki(þ.e að ég myndi ekki heilsa því útá götu) og hinn helminginn þekki ég svona..mellow. Eða að ég þekki valla þá sem ég ólst upp með og var með í skóla í 10 ár...10 ár! Svo er náttúrulega hluti af því að ég þekki nánast engann mjög vel(og kæri mig köllóttann um það).
Og já, ég ætla ekki að setja inn svona 2006 annál eins og tröllríður bloggsíðum heimsins núna. *Setur upp dáleiðslugleraugun* Ykkur langar ekkert til að sjá það, langar ekkert. Eða jú...ég skal skella inn einum stuttum.
Janúar til Ágúst:
Fyrir Noregsferð.
Ágúst til Desmeber
Eftir Noregsferð
Þangað til á morgun,
Bless bless
KśrbķturElliši Jónsson
Já, pæliði í því ef skvass(íþróttin sem ég stunda) væri þýtt sem kúrbítur. Þá væri heimurinn allt öðruvísi. Málið er að Squash(skvass á ensku fyrir þá sem ekki fatta) er einnig nafn á grænmeti sem er þýtt á Íslensku sem Kúrbítur. Pæliði í því...eða ekki, what ever.Já, kannski ætti maður að svona minnast á það að ég byrjaði að stunda skvass af miklu afli í síðasta mánuði með félaga mínum honum Nóra og hef með því bætt bæði andlega og líkamlega heilsu og vellíðan. Svo fékk ég í afmælisgjöf(já, ég er orðinn 17 ára) Keisarann frá mömmu og pabba, en spaðinn minn heitir Emperor120, og þá halda sumir að ég myndi þá rústa Nóra með Hamarinn en annað kemur á daginn því hann hefur flengt mig illa síðustu...5-6 vikur.
Talandi um afmælið mitt. Ég varð 17 ára þann heiðursdag 19. des og komst því í góðra manna hóp unglinga sem hafa ekki bílpróf. Ég var í vinnunni til 8 og fékk þá að fara heim til að hitta fjölskylduna, en needless to say, Illugi var heima en hafði ekki grænann Guðmund um að ég ætti afmæli - blessaður anginn. En þessi afmælisdagur eins og hinn í fyrra(2005) gekk fyrir sig áfallalaust og án þess að haldið yrði uppá hann. I don't do stuff like that.
Annars held ég að ég sé búinn að taka fram það flesta sem hefur á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðasta(tel ekki síðasta skiptið með), hef verið mikið á netinu að hlusta á svona audio-fæla og fann bæ í Slóvakíu sem heitir Aljudin(en það er forn-slavneska orðið prammi, sem Elliði er dregið af). Ég hef verið að lesa mikið, horfa á Dvd og hef einnig verið að skrifa mikið af sögum. Fæ bara ekki nóg af því.
-Einnig vill ég þakka þeim sem var svo hugulsamur að setja link inná B2.is með jólasögunni minni, en það er eitthvað sem ég hef ekki kjarkinn í(að leifa fleirr en 5 að lesa hana).
En svo fór ég í bíó í gær á Kalda slóð(hef tekið það fram) og tók þá eftir því 5 hlutum sem eru í öllum Íslenskum bíómyndum. Seen one, seen them all.
1. Eitt gamalt og illa farið hús útí guðsgrænni náttúrunni, og einhver að kíkja útúm gluggatjöldin.
2. Kjötsúpa(klikkar ekki)
3. Nekt(það er möst í íslenskri kvikmyndargerð)
4. Gamall, hörlegur kikrkjugarður og skítakuldi.
5. Einhver gömul kona sem er allsstaðar í íslenskum myndum(leikur mömmu Baldurs í K.S)
En jæja, best að fara að gera eitthvað annað skemmtilegt.
Þangað til næst..hvern er ég að blekkja Arnór, þú ert sá eini sem lest þetta.
Ég blogga aftur á morgun, ef ég verð ekki að drepast eftir skvassið
Glešileg próflok, jól og nżtt įr...nśna er 2007Elliši Jónsson
Já (þetta er massíft intro).Hver man ekki eftir sögunni um Atlantis, Sódómu og Gerrómu, Valinor og allt það trúarlega kjaftæði sem sökk eða brann. Síðan mín var á góðri leið til helvítis, en þá greip ég í stjórntaumana og reif hana uppúr forarsvaðinu og..hreinsaði hana. Þannig að það má telja þetta sem svona 3. útgáfuna af endurreisn hér á þessari síðu, og í þetta skiptið mun þetta halda(þangað til að ég fæ aftur leið og hætti). Kannski má líka líkja þessu við að með nýju ári koma nýjar hugsanir, það hljómar sem eitthvað nýtt að unglingur bloggar.
En núna eru komnir 3 mánuðir síðan ég bloggaði síðast, og vá hvað mikið hefur drifið á mína daga. Ég þróaði leið fyrir hreinan eldsneytisbruna, komst til tunglsins, læknaði almæni, keypti mér klukku...eða reyndar er þetta allt lygi, nema þetta með klukkuna. Ég keypti mér rándýrt vasaúr "old-style" og príði mig sælann með það. Hef ekki enn farið til tunglsins eða brennt hreint eldsneyti(eða eitthvað álíka), en það er á döfinni að gera þetta allt, lækna eldsneyti og fara með alnæmi til tunglsins.
Svo kláraði ég mína 3 önn í skólanum og náði sem betur fer öllu. Var samt mjög tæpur í spænskunni(þurfti 4.5 til að fá vetrareinkunnina metna og fékk 4.5) en náði samt flestu hinu bara svona "easy". Var með 99,7% í mætingareinkunn og fékk einingu(me want cookie) og stend því með 61 einingu í menntaskóla. Svo er stefnan bara sett á áframhaldandi nám í FÁ, umvafinn...fólki sem ég þekki. Mennt er máttur eins og einhver hvíthærður hippi í Grikklandi sagði fyrir mörgum árum, 50 eða eitthvað álíka.
Svo átti ég mjög svo góð jól umvafinn fjölskyldunni minni. Ég fékk bækur, bol, peysu og dvd-mynd. Það er ekki fjöldinn eða gæðin sem skipta máli - heldur hugurinn á bakvið sem gildir. Ég var með bræðum mínum og foreldrum á aðfangadag og 16 öðrum á Jóladag. Við vorum með lítið og hógvært matarboð(ekkert hjá okkur er lítið eða hógvært) með nánast engin fyrirhöfn. Bara 4 metra matarboð og nóg hangikjöt til að fæða lítinn sirkhús-fíl.
Svo tók við stutt millibils-ástand á milli jóla og nýárs(já, alveg rétt..ég vann eins og sveittur bóndi í póstinum eftir próflok og til jóla, en ég hef nú áður basast yfir því hversu vinnan mín er skemmtileg) og svo tóku við "the big Á". Ég, litli sveitarmaðurinn frá Ísafirði er aðeins að upplifa mín önnur áramót hér fyrir sunnan, og þau eru vægast sagt æðisgengin. Við eyddum þeim í faðmi fjölskyldunnar á Álftanesinu og höfðum frábært útsýni yfir Reykjarvíkina.
---
En hvað tekur við á árinu 2007?
Nenni ég að blogga daglega áfram, eða er þetta bara fyrsta af fáum miðlungsbloggum? Sjáum bara til.
Þangað til næst,
Bless bless
Jaaaį...talandi um aš nenna aš blogga.Elliši Jónsson
Hann fann hvernig hitinn og og sársaukinn skar eins í gegnum holdið eins og heitur hnífur í gegnum volgt smjör. Augun voru blóðhlaupin og bólgin eftir að hafa fengið sem virtist vera endlaus högg. Hann gat þó séð að önnur löppin var sundurbrotin og beinið stóð út og benti í allt aðra átt en það átti að gera. Hann heyrði einnig þegar þessi risa bejaki öskraði: "Bloggaðu andskoti, bloggaðu"Já, svona hefur mér liði síðustu daga, langar ógeðslega að blogga, en bara nenni því ekki. En ég ætla að andskotast til að blogga. En það hefur nú margt gerst á síðustu dögum hjá mér, reyndar ekkert spennandi, en samt. Á miðvikudaginn varð ég vitni of history in the making, en ég fór að sjá KF Nörd á móti FH. En það var nú saga að segja frá.
Ég ætla byrja á að skamma KSÍ smá, en þeir gerðu sömu mistök á þessum leik og á Ísland vs. Danmörk, en það var að opna hliðin ekki fyrr, en það var löng röð fyrir utan hliðið á sama tíma og leikurinn átti að byrja. Það þurfti því að fresta leiknum um góðar 10 min. En þetta var svo sem ekkert stórt vandamál miðað við hversu leikurinn var skemmtilegt. En svona til að segja ekkert óþarflega frá bumbunum á nördunum, þá stóðu þeir sig eins og hetjur á móti undirmönnuðu liði FH.
En svo hef ég bara verið í skólanum að "leggja grunn fyrir framtíðin", og hefur mér bara tekist nokkuð vel með það, ætli meðaleinkunnin mín yfir öll fögin sé svona um...7, kannski 6.5. En ég stefni á að falla ekki í einu né neinu meðan á minni skólagöngu stendur...að sjálfsögðu. En eftir hálfan mánuð(eða 20. okt) munu nýgræðingar hins óendanlega algleymis taka þátt í vetrabikarnum, en við erum í riðli C.
Takmarkið er að sjálfsögðu sett á annað sæti í riðlinum(en fyrsta sætið er náttúrulega way out of reach) en 3. sætið væri einnig ásættanlegt. En við ætlum að reyna að spila með kerfið 3-0-1 og mig í markinu. Við ætlum að reyna að ná fram þessum þýska járnaga sem hefur einkennt þýsku vörnina svo lengi. En við ætlum að reyna að hafa allavega eina æfingu áður en við keppnum, en þið getið ekki ýmindað ykkur hvað það er erfitt að smala saman 5 nördum og einu hlaupafríki(afsakið Óli) á sama stað og sama tíma.
En nóg komið af bloggi.
Þangað til næst,
Bless bless
Kominn aftur, fór samt aldreiElliši Jónsson
Kvöldið þeir sem lesa(sem minnkar alltaf með hverjum deginum sem ég nenni ekki að blogga).Úff...ef ég gæti bara hamið hugsanir mínar í orð og sett þær inná þessa síðu, því síðustu dagar hafa svo sannarlega verið eitthvað til að hugsa um. En ég hef bara ekki þennan hæfileika að skrifa fagurlega orðaðar setningar niðrá blað. En svona til að minnast á eitthvað um það sem ég hef lent í/eða nálægt mér er vægast sagt sérstök afmælissveisla, ástarmál að hætti Redneck's í Arizona, fótbolti á hæðsta mælikvarða og svo margt fleirra.
En á föstudaginn var mér boðið í 17 ára afmælissveislu hjá Heyju(Heiðrúnu) einhverstaðar uppí Vesturbænum. En áður en það hófst þurfti ég að þola skóla og svo manndrápsvinnu, en það var óendanlega mikið af pósti sem ætlaði aldrei að enda. Ég var þar til hálf 9 og svo fór ég ásamt Darra í Bitahöllina til að snæða eitt stykki hambó, svo tók ég strætó heim og beint í sturtu, en þar hitti ég kærustu Illuga(en það vill svo heppilega til að þau eiga sama bróðurinn...já... túlkið það eins og þið viljið). En svo um 10 leitið var loksins komið og náð í mig.
Þá var okkur troðið í bíl á stærð við matchbox bíl, og ekki eins og það sé nóg, heldur vorum við 4 í andskotans aftursætinu. En svo kom amður uppeftir, og kannski var það að hafa setið með hægra hnéð inní gagnauganu á næsta manni hliðiná, eða bara almenn vanlíðan, þá skemmti ég mér ekki eins vel og ég hefði viljað. En ég var þó það heppinn að ég ég var ekki sá eini edrú á staðnum.
Ég, Maggi, Grímur og Hössi(A.K.A magnaða stærðfræðigengið úr 203) sátum inní einu herberginu þegar ónefndur aðili(vill ekki segja alltof mikið) kemur inn með næstum tóman ópal-pela og þurmar með sinni valdamiklu rödd: "Hver drakk af mínu áfengi.", þá sagði Maggi yfirvegaður: "Við erum allir edrú hérna inni." Og hann var sko spældur yfir að hafa ekki fengið að buffa nokkra aumingja.
En svo kláraðist þetta seint um síðar meir og ég fór bara heim að lúmma(aumingji, ég veit). Svo tók bara við 2 dagar af eðal drolli, þar sem ég m.a spilaði fótbolta við my alter ego og sýni(og ég kidda ekki) magnaða takta.
En svo hófst skólinn bara aftur í dag, og undi hann(ég) vel við það.
En ég er out of here.
Þangað til næst,
Bless bless
God have mercy on my soulElliši Jónsson
Já verðið blessuð og sæl.Þá fer nú þessi vika bara að klárast, trúiði því? Bara fimmtudagurinn og föstudagurinn eftir, svo tekur helgin bara við aftur. Ég hefði getað svarið fyrir því að það væri ennþá bara mánudagur. En annars verður morgundagurinn bara rugl, því ég fer á Njáluslóðir um hálf 9 leitið á morgun og verð til 3. Sem er bara fínt því ég er venjulega í skólanum til hálf 5. Og svo er föstudagurinn bara eitt lítið frat, því ég er í tveimur tímum, fótbolta og íslensku. Svo tekur vinnan reyndar við.
En svo hafa undur og stórmerki gerst í íþróttasögu FÁ. Því á þarnæsta föstudag(reyndar næsta, og næstu 4 föstudaga) fer fram riðlakeppni í Vetrabikarnum og þar keppir liði Noobs of eternal blizz F.C.(Nýgræðingar hinnar óendanlegu alsælu) og er það samansett af...jaaa... lúðum í lélegu formi. Þar fer ég fremstu í flokki sem markmaður, meðan hinir eru bara uppfylling...neinei, segi svona, við erum allir fremstir meðal jafningja.
Við spilum með það að takmarki að vinna(Were're in it to win it), þótt allt undir 7-0 sé ásættanlegt, því ég er ekki beint sá besti í heimi þegar kemur að verja mark. Ég er meira svona karakter, því það er alltaf hægt að horfa á feita strákinn í svarta búningnum berjast við að reyna að vera frá þeim sem spila gegn mér, sem gengur svona...upp og niður.
En(Enenenenenen...endalaust af En-um) annars er bara lítið af mér að frétta. Eina frásögum færandi er að ég er að semja nýja jólasögu(er ekki viss hvort þetta sé 2007 sagan eða bara 2006, part 2). Annars er bara nákvæmlega ekkert sem ég get sagt frá, nema að ég er með 10 fingur og tíu tær(Sorglegt!!)
En ég ætla bara að kvelja sjónvarpið mitt.
Þangað til næst,
Blrss bless
XIX. XII. MCMLXXXIX.Elliši Jónsson
Já og góða kvöldið.Nú hellist húmið yfir,
og kvölda tekur á ný.
dreg nú augun fyrir,
og óttinn er fyrir bý.
Þá er þessi andsk... vika byrjuð með sínu hafurtaski. Skóli, vinna og allur pakkinn. En ég er náttúrulega maður mikill og vænn og rusla þessu bara af á no time(vikan mín er bara 5 dagar). En talandi um mikla og væna menn, því ég var að horfa á nýjasta lagið með Basshunter(Boten Anna)...og já...ég gæti haldið langa ræðu um hann, en ég ætla að draga það saman í nokkrar hnitmiðaðar setningar.
Segjum bara að hann sé eini maðurinn á jörðinni sem getur gert irc-ið og Wow spennandi. Hann er svo fullur af sannfæringarkrafti(kannski er það uber metrolookið eða þessi flaming gay taktar í myndbandinu við Boten Anna) að hann gæti sannfært herbergi fullu af fólki að hann væri ekki þarna: "Ég er ekki hér, og jeg kenner en bott..."
Líka eitt sem ég get bennt á er að þú getur ekki sett einhverja horrenglu sem hefur aldrei séð mjóbak á kvenmanni uppá svið með hljóðnema og látið hann syngja um botta og wow og pwn og allt það rugl. Fólk myndi bara halda að hann hefði sloppið frá Kleppi eða úr kjallaranum heima hjá sér.
En annars var skólinn bara léttur, fékk úr prófum eða tveimur og naut bara lífsins til hins fyllsta. Potaði í auga og hellti úr sjóðandi heitum kaffibolla á Ella eða tvo. En svo fór ég heim og gat bara ekki haldið augunum opnum, því ég steinsofnaði um eitthvað leitið....múhahaha...
En ég ætla bara að fara að leggja mig.
Þangað til næst,
Bless bless