...Elliða Bók
Gleðileg próflok, jól og nýtt ár...núna er 2007Elliði Jónsson
Já (þetta er massíft intro).Hver man ekki eftir sögunni um Atlantis, Sódómu og Gerrómu, Valinor og allt það trúarlega kjaftæði sem sökk eða brann. Síðan mín var á góðri leið til helvítis, en þá greip ég í stjórntaumana og reif hana uppúr forarsvaðinu og..hreinsaði hana. Þannig að það má telja þetta sem svona 3. útgáfuna af endurreisn hér á þessari síðu, og í þetta skiptið mun þetta halda(þangað til að ég fæ aftur leið og hætti). Kannski má líka líkja þessu við að með nýju ári koma nýjar hugsanir, það hljómar sem eitthvað nýtt að unglingur bloggar.
En núna eru komnir 3 mánuðir síðan ég bloggaði síðast, og vá hvað mikið hefur drifið á mína daga. Ég þróaði leið fyrir hreinan eldsneytisbruna, komst til tunglsins, læknaði almæni, keypti mér klukku...eða reyndar er þetta allt lygi, nema þetta með klukkuna. Ég keypti mér rándýrt vasaúr "old-style" og príði mig sælann með það. Hef ekki enn farið til tunglsins eða brennt hreint eldsneyti(eða eitthvað álíka), en það er á döfinni að gera þetta allt, lækna eldsneyti og fara með alnæmi til tunglsins.
Svo kláraði ég mína 3 önn í skólanum og náði sem betur fer öllu. Var samt mjög tæpur í spænskunni(þurfti 4.5 til að fá vetrareinkunnina metna og fékk 4.5) en náði samt flestu hinu bara svona "easy". Var með 99,7% í mætingareinkunn og fékk einingu(me want cookie) og stend því með 61 einingu í menntaskóla. Svo er stefnan bara sett á áframhaldandi nám í FÁ, umvafinn...fólki sem ég þekki. Mennt er máttur eins og einhver hvíthærður hippi í Grikklandi sagði fyrir mörgum árum, 50 eða eitthvað álíka.
Svo átti ég mjög svo góð jól umvafinn fjölskyldunni minni. Ég fékk bækur, bol, peysu og dvd-mynd. Það er ekki fjöldinn eða gæðin sem skipta máli - heldur hugurinn á bakvið sem gildir. Ég var með bræðum mínum og foreldrum á aðfangadag og 16 öðrum á Jóladag. Við vorum með lítið og hógvært matarboð(ekkert hjá okkur er lítið eða hógvært) með nánast engin fyrirhöfn. Bara 4 metra matarboð og nóg hangikjöt til að fæða lítinn sirkhús-fíl.
Svo tók við stutt millibils-ástand á milli jóla og nýárs(já, alveg rétt..ég vann eins og sveittur bóndi í póstinum eftir próflok og til jóla, en ég hef nú áður basast yfir því hversu vinnan mín er skemmtileg) og svo tóku við "the big Á". Ég, litli sveitarmaðurinn frá Ísafirði er aðeins að upplifa mín önnur áramót hér fyrir sunnan, og þau eru vægast sagt æðisgengin. Við eyddum þeim í faðmi fjölskyldunnar á Álftanesinu og höfðum frábært útsýni yfir Reykjarvíkina.
---
En hvað tekur við á árinu 2007?
Nenni ég að blogga daglega áfram, eða er þetta bara fyrsta af fáum miðlungsbloggum? Sjáum bara til.
Þangað til næst,
Bless bless
Athugasemdir
2
Hinn sem skoðar síðuna skrifar:
potato poteito
03. janúar 2007 klukkan 02:16
Read the Silmarillion.