...Elliða Bók
KúrbíturElliði Jónsson
Já, pæliði í því ef skvass(íþróttin sem ég stunda) væri þýtt sem kúrbítur. Þá væri heimurinn allt öðruvísi. Málið er að Squash(skvass á ensku fyrir þá sem ekki fatta) er einnig nafn á grænmeti sem er þýtt á Íslensku sem Kúrbítur. Pæliði í því...eða ekki, what ever.Já, kannski ætti maður að svona minnast á það að ég byrjaði að stunda skvass af miklu afli í síðasta mánuði með félaga mínum honum Nóra og hef með því bætt bæði andlega og líkamlega heilsu og vellíðan. Svo fékk ég í afmælisgjöf(já, ég er orðinn 17 ára) Keisarann frá mömmu og pabba, en spaðinn minn heitir Emperor120, og þá halda sumir að ég myndi þá rústa Nóra með Hamarinn en annað kemur á daginn því hann hefur flengt mig illa síðustu...5-6 vikur.
Talandi um afmælið mitt. Ég varð 17 ára þann heiðursdag 19. des og komst því í góðra manna hóp unglinga sem hafa ekki bílpróf. Ég var í vinnunni til 8 og fékk þá að fara heim til að hitta fjölskylduna, en needless to say, Illugi var heima en hafði ekki grænann Guðmund um að ég ætti afmæli - blessaður anginn. En þessi afmælisdagur eins og hinn í fyrra(2005) gekk fyrir sig áfallalaust og án þess að haldið yrði uppá hann. I don't do stuff like that.
Annars held ég að ég sé búinn að taka fram það flesta sem hefur á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðasta(tel ekki síðasta skiptið með), hef verið mikið á netinu að hlusta á svona audio-fæla og fann bæ í Slóvakíu sem heitir Aljudin(en það er forn-slavneska orðið prammi, sem Elliði er dregið af). Ég hef verið að lesa mikið, horfa á Dvd og hef einnig verið að skrifa mikið af sögum. Fæ bara ekki nóg af því.
-Einnig vill ég þakka þeim sem var svo hugulsamur að setja link inná B2.is með jólasögunni minni, en það er eitthvað sem ég hef ekki kjarkinn í(að leifa fleirr en 5 að lesa hana).
En svo fór ég í bíó í gær á Kalda slóð(hef tekið það fram) og tók þá eftir því 5 hlutum sem eru í öllum Íslenskum bíómyndum. Seen one, seen them all.
1. Eitt gamalt og illa farið hús útí guðsgrænni náttúrunni, og einhver að kíkja útúm gluggatjöldin.
2. Kjötsúpa(klikkar ekki)
3. Nekt(það er möst í íslenskri kvikmyndargerð)
4. Gamall, hörlegur kikrkjugarður og skítakuldi.
5. Einhver gömul kona sem er allsstaðar í íslenskum myndum(leikur mömmu Baldurs í K.S)
En jæja, best að fara að gera eitthvað annað skemmtilegt.
Þangað til næst..hvern er ég að blekkja Arnór, þú ert sá eini sem lest þetta.
Ég blogga aftur á morgun, ef ég verð ekki að drepast eftir skvassið
Athugasemdir
1
Agnes skrifar:
Ég heiti ekki Arnór, ég heiti Agnes. En ég er með eina pælingu fyrir þig. Pældu í ef að þú værir með eina stóra stórutá í staðin fyrir nef. Þyrftir alltaf að snyrta tánöglina. Og þá fengiru heldur ekki sorgarrendur, sem væri kannski, eftir e-ð sem þú hefðir kroppað óvart. Heldur væriru bara með hor undir nöglinni. Pældu aðeins í því...þetta er djúp pæling,
03. janúar 2007 klukkan 18:54