...Elliða Bók
At the end of the snack tableElliði Jónsson
Já(svona munu öll bloggin mín byrja).Ég ætla nú að byrja á því að biðja Agnesi afsökunnar á þessari ruddalegu framkomu minni, en ég staðhæfði það að engi læsi þetta nema ég og Arnór, en að sjálfsögðu kemur Agnes sterk inn með sitt jiblum-babb í athugasemdunum. Merkilegt hvað mikið afl kemur úr svona lítilli döm...uuu...
Annars ætla ég að minnast aðeins á orðið hræsni(ekki blanda á milli asna og hænsna). Segjum svo að maður X hefur vaknað reglulega eldsnemma á morgnana til að fara í hópíþrótt, því að aðrir tímar þóknast ekki Y sem er líka í hópnum. X sefur lítið á næturnar vegna svefleysis en lætur 4-5 tíma nægja sér og er alltaf mættur ferskur á morganan. Svo fær hann skilaboð eftir eina andvökunóttina frá Y þar sem hann segist þurfa að sofa út(aww...vesalings dúllan), en X stendur í stigaganginu með göngustafinn í hendinni, vaknaður og þreyttur. Það er alltaf Y-leiðin eða engin leið. En eins og ég sagði, þetta er gott dæmi um hræsni.
-Á morgun verður tekið fyrir orðið Lesbók(þetta er liður í liðnum "Kynnumst íslenskum orðum")
Annars mætti ég ferskur í vinnuna(takið eftir þessu, ég er alltaf ferskur þegar ég mæti í vinnuna) og sá þá, mér til mikils hryllings, að það var nánast enginn í vinnunni, en pósturinn tekur ekkert mark á því. Þannig að það var dálítið mikið að gera í dag, en ég hef fengið mikla gagnrýni frá sumum aðilum um að ég vinni ekkert. Og það er stundum bara rétt
En ég var að skoða skólaspjaldið mitt frá því úr 10.bekk(ég lít út eins og durgur sem var fenginn á slæmum degi til að stilla mig upp fyrir myndartöku) og fattaði þá að ég þekki ekki helmingin af þessu fólki(þ.e að ég myndi ekki heilsa því útá götu) og hinn helminginn þekki ég svona..mellow. Eða að ég þekki valla þá sem ég ólst upp með og var með í skóla í 10 ár...10 ár! Svo er náttúrulega hluti af því að ég þekki nánast engann mjög vel(og kæri mig köllóttann um það).
Og já, ég ætla ekki að setja inn svona 2006 annál eins og tröllríður bloggsíðum heimsins núna. *Setur upp dáleiðslugleraugun* Ykkur langar ekkert til að sjá það, langar ekkert. Eða jú...ég skal skella inn einum stuttum.
Janúar til Ágúst:
Fyrir Noregsferð.
Ágúst til Desmeber
Eftir Noregsferð
Þangað til á morgun,
Bless bless
Athugasemdir
1
Valgerður :D skrifar:
Jeep, ég nennti ekki að lesa :D En ég geri það bara seinna :D
04. janúar 2007 klukkan 18:34
2
Agnes skrifar:
hahahaha!! kreiiiiisí annáll!! minnir mig á rimlagardínur, dularfullar en auðveldar...
04. janúar 2007 klukkan 21:23
3
Agnes skrifar:
jæja þú sagðyr mér að sgryfa eytthvað gott gomment þar sem lyglaborðyð mytt er bylað...getyð væntanlega séð hvaða stafyr eru vangefnyr...ætla að láta mynn ynnry mongolýta brjótast út. Hann er búynn að vera læstur ynny of lengy. Og hann er gomynn með nóg af gogteylsósu og goggamat|vynnur á hótely t.d og eldar mat|. hann vyll gornflex. oooog mér lýður gjánalega. En gannsy sgyluru eggert af þessu..hhaha EGGERT! úfff...þessy var góður
05. janúar 2007 klukkan 03:27