...Elliða Bók
Tjugg tjuggElliði Jónsson
JáÞá er þessi vinnuvika loksins að vera búin(fyrir mig því að ég þarf ekki að vinna á morgun...hahahahahahahahaahaha...hí á ykkur) og þá tekur helgin við. Eilíft djamm og fjör hjá mér. Eða ekki.
En ég vaknaði í morgun við minn fallega og saklausa síma(sem ég mun að eilífu hata fyrir að hafa vakið mig) og hinumeginn hljómaði:
,,Elliði, hvar ertu?" Ég lít í kringum mig í myrkrinu og hugsa..hvar er ég í andskotanum? ,,Ég er fram á gangi." Ég er með mikinn svefngalsa þegar ég átta mig loksins á þessu að þetta er ekkert grín. Það var manneskja bíðandi eftir mér á ganginum...how creepy is that? Sat í myrkrinu og beið, beið eins og rándýr eftir mér.
Ég fór svo í skólann til að ná í stundartöfluna, og í fyrsta skiptið þurfti ég að andmæla yfirvaldinu og segja því að troða henni þar sem sólin skín ekki - já, ég er að tala um innuna, því ég þurfti að láta gera breytingar á henni...Sag313, ekki Sag303. Muna það, þetta er svona eins og að skeina sér með hægri, 303 er verra en 313. Annars var hún bara nokkuð góð, allavega skömminni skárri en stundataflan í fyrra - vúúú...það var one pice of shit.
Kynnumst Íslenskunni:
Orðið sem ég ætla að minnast á í dag er Lesbók. Já, þið hafði örruglega verið að velta því fyrir ykkur, hvað er Lesbók. Það er einfalt, því þegar Ísland var orðið frjálslynt og allir voru velkomnir kom hópur af gríksum nunnum hingað til lands. Þær kölluðus Lesbos heima hjá sér, en ísland er frjálslynt, en ekki það. Mannanafnanefnd var ósammála þessu og stakk uppá að þær myndi kalla sig Lesbók. Þær tóku svo þrusuvel í þetta, og ákváðu að gefa úr rit til að fagna þessu, og það hét "Lesbók" - eða "Nunnurnar frá Grikklandi".
-á morgun verður tekið fyrir orðið " Hringur"
En eins og ég kom að áðan, þá verð ég heima. En það þýðir ekki að þetta verði eitthvað letilíf, nei...alls ekki. Ég ætla að lesa eins og MoFo og svo þarf að fara að huga að bókarkaupum, en skólinn er óvenju illur þessa önnina. Ég á alveg eins von á að taskan mín muni vega 20-30 kíló, eða lítinn afríkubúa. Kannski ætti maður bara að flytja í skólann, þá þarf maður allavega ekki að bera helvítið alla þessa leið, pæling.
En þangað til næst,
Bless bless
Athugasemdir
1
Agnes skrifar:
Ekki fyrir mitt litla líf myndi ég flytja inní skólann. Guðni myndi blóta mér í sand og ösku og þar að auki er ekkert svefnpokapláss niðrí gryfju eða inní stofum..þannig heima er best, að fá sér bíl og blaðburða(bókbera í þessu tilfelli)kerru þannig maður reyni ekki á sig? Eða einfaldlega borga e-m til þess að dröslast með þetta áfram
08. janúar 2007 klukkan 17:38