Aðalvalmynd

Auglýsing

Aðvörun

Þessi síða er ekki ætluð þeim sem er illa við mig, eða mér er illa við. Þeim er vinsamlegast bent á að pilla sig á brott.

Kveðja frá Elliða

Atriðaorðaskrá

Hættur í skóla!!!Elliði Jónsson

Nei, hahaha...got you there, mamma myndi aldrei leifa mér að hugsa um það.  "Mennt er máttur" hefur hún alltaf sagt..well...hún hefur ekki hitt Chuck Norris, en mottóið hjá honum er "Chuck Norris er máttur".

En annars hef ég bara ekki verið að standa mig, engann veginn.  Komnir 6 dagar síðan að ég nennti síðast að blogga, en ég ætlaði í alvörunni að blogga um helgina...og í gær...og fyrradag.  En maður grætur ekki yfir gömlum syndum, nema gömlum ósyndu fólki í sundi*flissar*.  Þannig að ég tel það vera ógeðslega kúl hjá mér núna að blogga, til að sýna að ég hef þrekið og agann til að gera þetta...eða gera þetta semi.  Ég er svona semi-bloggari.

En svo vill ég óska EmmÍ-ingum til hamingju með rústið á Iðnó í hafnarfirði, en staðan var 20-2 þegar Sigmundur Ernir ákvað að hlífa Iðnóingum fyrir meiri niðurlægingu.  Jóhann og Halldór fóru á hamförum, og sérstaklega Dóri þegar hann sagði "Mamma er mikill Duran Duran aðdáandi og þess vegna segi ég James LeBon."    Svona til að vera ekki einn af þeim sem eru að leggja aðra í einelti á bloggsíðum, þá er rétta svarið Simon LeBon.  Ekki James eða Jacob.

En annars er ekkert merkilegt búið að gerast í mínu auðmjúka lífi eða skólanum, er reyndar allur að venjast nýju tímunum og kennurnunum og svoleiðis, en það gengur bara vel...enda engin Danska né stærðfræði - enda er ég BÚINN MEÐ ÞAÐ HELVÍTI.  Þarf aldrei að taka þetta aftur, aldrei!  En mér finnst samt líklegt að ég taki Stæ403 einhverntímann og Dan303, bara svona uppá fönnið, svona show-off af minni hálfu.

En ég held að málið sé bara svefn, svef, svefn.. ég hef nánast ekkert sofið síðustu nætur, og það er byrjað að taka sinn toll á skólanum...sofnaði til dæmis í íslensku, enda er íslensk bókmenntasaga frá 1500-1900 einstaklega spennandi.

Þangað til næst,

bless bless

Athugasemdir

1
Nóri skrifar:
Það var Gabbi sem tók pennaveskið, ef þú veist það ekki nú þegar.
11. janúar 2007 klukkan 22:45
2
Jói skrifar:
Það var nú ég sem sagði þessi fleygu orð um "James" Lebon en ekki Halldór ;) held að mamma hans sé meira frá bítlatímabilinu heldur en duranduran tímanum :þ
13. janúar 2007 klukkan 03:43
3
Hinn sem skoðar síðuna skrifar:
fékk villandi upplýsingar:D
13. janúar 2007 klukkan 07:52

Skrifa athugasemd

Gagnasafn

Könnun

Árið 2006 var...?