Aðalvalmynd

Auglýsing

Aðvörun

Þessi síða er ekki ætluð þeim sem er illa við mig, eða mér er illa við. Þeim er vinsamlegast bent á að pilla sig á brott.

Kveðja frá Elliða

Atriðaorðaskrá

Þriðja Lýðveldið / Endurreisn númer 3+Elliði Jónsson

Gott kvöld, svona miðnætursblogg áður en ég þarf að sofna.

Ég sé að þótt það séu liðnir 5 mánuðir síðan ég bloggaði síðast, er ennþá einhver/jir sem skoða þessa síðu ennþá(Kannski útaf eilífri bið eftir blogginu sem kemur aldrei, eða bara bíða eftir að geta spammað eins og þrossar).  En ég get svo sem get báðum þessum hópum til geðs og bloggað eitt lítið og saklaust blogg.

En ég ætla að nota tækifærið og þakka Ísfirðingum fyrir að gera mér grein fyrir því að ég ætla aldrei aftur þangað.  Þessir krakkar hafa sýnt óeðlilegan þroska þegar þeir baktala mig og hunsa eins og ég sé ekki þarna(sem ég var um páskana).  Einnig hafa þeir sýnt mér það að lífið í borginni er 10 sinnum betra en þarna fyrir vestan(á alveg von á einhverju leiðindar spammi eftir þetta blogg, en so be it). 

En nóg af þessu, snúum okkur að einhverju skemmtilegu.  Síðan ég bloggaði síðast hefur nú andskoti margt gerst hjá mér, ég kláraði annað árið mitt í FÁ, byrjaði í ökuskólanum, kláraði ökuskólann, náði bílprófinu með stæl, keypti mér þennan eðal kagga(Renault Mégan Berline) árgerð 1997, og keyrður eitthvað x marga kílómetra *flautar sakleysislega*.  Sannakallaður gellusegull...

Ég er byrjaður í fullri sumarvinnu í póstinum, oh the sweet job, og er á glænýjum vinnutíma, því í staðinn fyrir 12:00 til 20:00 er ég kominn á Dadadadarraaaaa...11:00 til 19:15.  Breytingarnar eru því all svaðalegar.  Bara himin og haf sem skilur þetta að, kæmi heilu syndarflóði þarna á milli + eitt stykki örk.

En ég ætla að segja þetta gott í kvöld/nótt, kem með góðan annáll á morgum/í dag.

Þangað til næst,

Ciaó

Skrifa athugasemd

Gagnasafn

Könnun

Árið 2006 var...?