...Elliða Bók
XIX. XII. MCMLXXXIX.Elliði Jónsson
Já og góða kvöldið.Nú hellist húmið yfir,
og kvölda tekur á ný.
dreg nú augun fyrir,
og óttinn er fyrir bý.
Þá er þessi andsk... vika byrjuð með sínu hafurtaski. Skóli, vinna og allur pakkinn. En ég er náttúrulega maður mikill og vænn og rusla þessu bara af á no time(vikan mín er bara 5 dagar). En talandi um mikla og væna menn, því ég var að horfa á nýjasta lagið með Basshunter(Boten Anna)...og já...ég gæti haldið langa ræðu um hann, en ég ætla að draga það saman í nokkrar hnitmiðaðar setningar.
Segjum bara að hann sé eini maðurinn á jörðinni sem getur gert irc-ið og Wow spennandi. Hann er svo fullur af sannfæringarkrafti(kannski er það uber metrolookið eða þessi flaming gay taktar í myndbandinu við Boten Anna) að hann gæti sannfært herbergi fullu af fólki að hann væri ekki þarna: "Ég er ekki hér, og jeg kenner en bott..."
Líka eitt sem ég get bennt á er að þú getur ekki sett einhverja horrenglu sem hefur aldrei séð mjóbak á kvenmanni uppá svið með hljóðnema og látið hann syngja um botta og wow og pwn og allt það rugl. Fólk myndi bara halda að hann hefði sloppið frá Kleppi eða úr kjallaranum heima hjá sér.
En annars var skólinn bara léttur, fékk úr prófum eða tveimur og naut bara lífsins til hins fyllsta. Potaði í auga og hellti úr sjóðandi heitum kaffibolla á Ella eða tvo. En svo fór ég heim og gat bara ekki haldið augunum opnum, því ég steinsofnaði um eitthvað leitið....múhahaha...
En ég ætla bara að fara að leggja mig.
Þangað til næst,
Bless bless
Athugasemdir
1
Ampharos skrifar:
19.12,1989, þurfti ekki að skoða rómversku tölurnar til að ná þessu, ég er orðinn nokkuð sleipur í þessu rugli.
26. september 2006 klukkan 15:02
2
GRÍMUR OG ELLI skrifar:
Sæll Elliði okkur þykir með eindæmum yndislegt að lesa svo falleg skrif þín. Bestu kveðjur frá odhj-genginu...
26. september 2006 klukkan 16:38
3
Linda Pé skrifar:
hæ hæ...
bara kvitt frá okkur Ísafjarðarstelpunum ;-)
sjáðu nýjar myndir úr 4 ára afmæli frænku á www.barnanet.is/rebekka23
bestu kveðjur á liðið,
Linda og Rebekka
bara kvitt frá okkur Ísafjarðarstelpunum ;-)
sjáðu nýjar myndir úr 4 ára afmæli frænku á www.barnanet.is/rebekka23
bestu kveðjur á liðið,
Linda og Rebekka
26. september 2006 klukkan 16:39