Ašalvalmynd

Auglżsing

Ašvörun

Žessi sķša er ekki ętluš žeim sem er illa viš mig, eša mér er illa viš. Žeim er vinsamlegast bent į aš pilla sig į brott.

Kvešja frį Elliša

Atrišaoršaskrį

God have mercy on my soulElliši Jónsson

Já verðið blessuð og sæl.

Þá fer nú þessi vika bara að klárast, trúiði því?  Bara fimmtudagurinn og föstudagurinn eftir, svo tekur helgin bara við aftur.  Ég hefði getað svarið fyrir því að það væri ennþá bara mánudagur.  En annars verður morgundagurinn bara rugl, því ég fer á Njáluslóðir um hálf 9 leitið á morgun og verð til 3.  Sem er bara fínt því ég er venjulega í skólanum til hálf 5.  Og svo er föstudagurinn bara eitt lítið frat, því ég er í tveimur tímum, fótbolta og íslensku.  Svo tekur vinnan reyndar við.

En svo hafa undur og stórmerki gerst í íþróttasögu FÁ.  Því á þarnæsta föstudag(reyndar næsta, og næstu 4 föstudaga) fer fram riðlakeppni í Vetrabikarnum og þar keppir liði Noobs of eternal blizz F.C.(Nýgræðingar hinnar óendanlegu alsælu) og er það samansett af...jaaa... lúðum í lélegu formi.  Þar fer ég fremstu í flokki sem markmaður, meðan hinir eru bara uppfylling...neinei, segi svona, við erum allir fremstir meðal jafningja.

Við spilum með það að takmarki að vinna(Were're in it to win it), þótt allt undir 7-0 sé ásættanlegt, því ég er ekki beint sá besti í heimi þegar kemur að verja mark.  Ég er meira svona karakter, því það er alltaf hægt að horfa á feita strákinn í svarta búningnum berjast við að reyna að vera frá þeim sem spila gegn mér, sem gengur svona...upp og niður.

En(Enenenenenen...endalaust af En-um) annars er bara lítið af mér að frétta.  Eina frásögum færandi er að ég er að semja nýja jólasögu(er ekki viss hvort þetta sé 2007 sagan eða bara 2006, part 2).  Annars er bara nákvæmlega ekkert sem ég get sagt frá, nema að ég er með 10 fingur og tíu tær(Sorglegt!!)

En ég ætla bara að kvelja sjónvarpið mitt.

Þangað til næst,

Blrss bless     

Athugasemdir

1
Nóri skrifar:
Nobbs of eternal Blizz rokka spik-feitt!

p.s. ánægður með þýðinguna" Nýgræðingar hinnar óendanlegu alsælu" mundi reyndar nota "eilífu" í staðinn fyrir óendanlegu. (Nýgræðingar hinnar eilífu alsælu)
28. september 2006 klukkan 03:48

Skrifa athugasemd

Gagnasafn

Könnun

Įriš 2006 var...?