...Elliša Bók
Kominn aftur, fór samt aldreiElliši Jónsson
Kvöldið þeir sem lesa(sem minnkar alltaf með hverjum deginum sem ég nenni ekki að blogga).Úff...ef ég gæti bara hamið hugsanir mínar í orð og sett þær inná þessa síðu, því síðustu dagar hafa svo sannarlega verið eitthvað til að hugsa um. En ég hef bara ekki þennan hæfileika að skrifa fagurlega orðaðar setningar niðrá blað. En svona til að minnast á eitthvað um það sem ég hef lent í/eða nálægt mér er vægast sagt sérstök afmælissveisla, ástarmál að hætti Redneck's í Arizona, fótbolti á hæðsta mælikvarða og svo margt fleirra.
En á föstudaginn var mér boðið í 17 ára afmælissveislu hjá Heyju(Heiðrúnu) einhverstaðar uppí Vesturbænum. En áður en það hófst þurfti ég að þola skóla og svo manndrápsvinnu, en það var óendanlega mikið af pósti sem ætlaði aldrei að enda. Ég var þar til hálf 9 og svo fór ég ásamt Darra í Bitahöllina til að snæða eitt stykki hambó, svo tók ég strætó heim og beint í sturtu, en þar hitti ég kærustu Illuga(en það vill svo heppilega til að þau eiga sama bróðurinn...já... túlkið það eins og þið viljið). En svo um 10 leitið var loksins komið og náð í mig.
Þá var okkur troðið í bíl á stærð við matchbox bíl, og ekki eins og það sé nóg, heldur vorum við 4 í andskotans aftursætinu. En svo kom amður uppeftir, og kannski var það að hafa setið með hægra hnéð inní gagnauganu á næsta manni hliðiná, eða bara almenn vanlíðan, þá skemmti ég mér ekki eins vel og ég hefði viljað. En ég var þó það heppinn að ég ég var ekki sá eini edrú á staðnum.
Ég, Maggi, Grímur og Hössi(A.K.A magnaða stærðfræðigengið úr 203) sátum inní einu herberginu þegar ónefndur aðili(vill ekki segja alltof mikið) kemur inn með næstum tóman ópal-pela og þurmar með sinni valdamiklu rödd: "Hver drakk af mínu áfengi.", þá sagði Maggi yfirvegaður: "Við erum allir edrú hérna inni." Og hann var sko spældur yfir að hafa ekki fengið að buffa nokkra aumingja.
En svo kláraðist þetta seint um síðar meir og ég fór bara heim að lúmma(aumingji, ég veit). Svo tók bara við 2 dagar af eðal drolli, þar sem ég m.a spilaði fótbolta við my alter ego og sýni(og ég kidda ekki) magnaða takta.
En svo hófst skólinn bara aftur í dag, og undi hann(ég) vel við það.
En ég er out of here.
Þangað til næst,
Bless bless
Athugasemdir
1
Nóri skrifar:
ég nenni ekki að kommenta
03. október 2006 klukkan 04:05