...Elliða Bók
Jaaaá...talandi um að nenna að blogga.Elliði Jónsson
Hann fann hvernig hitinn og og sársaukinn skar eins í gegnum holdið eins og heitur hnífur í gegnum volgt smjör. Augun voru blóðhlaupin og bólgin eftir að hafa fengið sem virtist vera endlaus högg. Hann gat þó séð að önnur löppin var sundurbrotin og beinið stóð út og benti í allt aðra átt en það átti að gera. Hann heyrði einnig þegar þessi risa bejaki öskraði: "Bloggaðu andskoti, bloggaðu"Já, svona hefur mér liði síðustu daga, langar ógeðslega að blogga, en bara nenni því ekki. En ég ætla að andskotast til að blogga. En það hefur nú margt gerst á síðustu dögum hjá mér, reyndar ekkert spennandi, en samt. Á miðvikudaginn varð ég vitni of history in the making, en ég fór að sjá KF Nörd á móti FH. En það var nú saga að segja frá.
Ég ætla byrja á að skamma KSÍ smá, en þeir gerðu sömu mistök á þessum leik og á Ísland vs. Danmörk, en það var að opna hliðin ekki fyrr, en það var löng röð fyrir utan hliðið á sama tíma og leikurinn átti að byrja. Það þurfti því að fresta leiknum um góðar 10 min. En þetta var svo sem ekkert stórt vandamál miðað við hversu leikurinn var skemmtilegt. En svona til að segja ekkert óþarflega frá bumbunum á nördunum, þá stóðu þeir sig eins og hetjur á móti undirmönnuðu liði FH.
En svo hef ég bara verið í skólanum að "leggja grunn fyrir framtíðin", og hefur mér bara tekist nokkuð vel með það, ætli meðaleinkunnin mín yfir öll fögin sé svona um...7, kannski 6.5. En ég stefni á að falla ekki í einu né neinu meðan á minni skólagöngu stendur...að sjálfsögðu. En eftir hálfan mánuð(eða 20. okt) munu nýgræðingar hins óendanlega algleymis taka þátt í vetrabikarnum, en við erum í riðli C.
Takmarkið er að sjálfsögðu sett á annað sæti í riðlinum(en fyrsta sætið er náttúrulega way out of reach) en 3. sætið væri einnig ásættanlegt. En við ætlum að reyna að spila með kerfið 3-0-1 og mig í markinu. Við ætlum að reyna að ná fram þessum þýska járnaga sem hefur einkennt þýsku vörnina svo lengi. En við ætlum að reyna að hafa allavega eina æfingu áður en við keppnum, en þið getið ekki ýmindað ykkur hvað það er erfitt að smala saman 5 nördum og einu hlaupafríki(afsakið Óli) á sama stað og sama tíma.
En nóg komið af bloggi.
Þangað til næst,
Bless bless
Athugasemdir
1
Nóri skrifar:
hvað varð um alsælu?
08. október 2006 klukkan 04:38