Ašalvalmynd

Auglżsing

Ašvörun

Žessi sķša er ekki ętluš žeim sem er illa viš mig, eša mér er illa viš. Žeim er vinsamlegast bent į aš pilla sig į brott.

Kvešja frį Elliša

Atrišaoršaskrį

Gęfu sinnar hver er smišur.Elliši Jónsson

Jæja, þá er formlegu þrælahaldi(skólastarfi) lokið í FÁ og næst taka prófin við.  Núna áðan var Dimission/dimmitering í skólanum og voru allir klæddir eins og sjóræningjar sem áttu að vera komnir vel í glas, þó ég held að það hafi ekki verið hluti af gerfinu.  Eftir það ákvað ég að fara og njóta góða veðrisins(innan úr stofu að sjálfsögðu).

Núna ætti mikilvægasti bréfsnepill mánaðarins að koma hvað úr hverju.  Ég er að sjálfsögðu ekki að meina B&B heldur launaseðilinn góði.  Ég er nefninlega eins og sumir sem nenna ekki að rölta útí hraðbanka til að athuga hvort það sé búið að leggja inn hjá mér.  Verð að sjá það svart á hvítu til að trúa því.

Nú fer sumarið að koma með tilheyrandi stuði og gamani.  Ætli ég verði ekki fyrir vestan á óðalinu allar þær stundir sem ég verð ekki að vinna hjá póstinum yndislega.  Svo veit maður aldrei nema að maður skreppi vestur til Ísafjarðar sem á sérstakan stað í hjarta mínu, lítill staður, en samt.  Svo er líka á kortinu að skreppa til Kongriget Norge til að heilsa uppá pissefuld og ligeglad ættingja.  Stuð Stuð segi ég nú bara.

Þangað til næst....Enig og tro til Gleiðarhjalli faller 

Ego te absolvoElliši Jónsson

Jæja....nú hafa himnarnir hrunið á mig oft í dag.  Neinei...bara að vera smá-dramatískur...

Ég var að koma úr minni heittelskuðu vinnu núna rétt áðan, mega stuð og eilíft fjör.  Ég fékk þessa fallegu íþróttatösku í sumargjöf og það er greinilegt að þeir sem kaupa þetta inn hafa greinilega ekki tekið sér tíma til að skoða bakgrunn starfsmannanna.  Því þeir sem eru með 13% sjón eða meira get séð að ég hef nákvæmlega ekkert við íþróttatösku að gera.  Frekar hefði ég viljað að fá mánaðar skammt af Domino's, því ég er eins óíþróttamannslega sinnaður og þeir gerast. 

Annars er allt gott að frétta af mér.  Munið bara...ég er primus inter pares.

Bless á meðan, geitur í haga með rauðbrúnan maga

Śti aš krossfesta prestaElliši Jónsson

Núna er sumarið að nálgast.  Sólin er byrjuð að hækka á lofti og hitatölurnar eru byrjaðar að hækka.  Núna áðan var sumarfagnaður í skólanum, mega gaman.  Á bílaplaninu voru hoppukastalar, boxhringur og eitthvað teygju-dót, meðan Raggi Bjarna sá um stuðið með sínum óþrjótandi kynþokka og hæfileikum.  Einnig var Rappari, McGauti, sem var nánast í einsstaklings Battle, þ.e.a.s að hann var að rappa hve hann væri ömurlegur og álíka(Kannski ekki sá gáfaðasti?)

Það var verið að dreifa allskonar gjöfum á bílaplaninu þar sem allt fór fram.  Það má nefna plastgleraugu, jó-jó, sjampó, snakk, gos og smokka.  Þegar ég sá smokkana hugsaði ég "I'm not gonna need those for a decade or so..."..það lýsir kannski hve "sorglegur" ég er....

Meðan þessar "mikilvægu" hugsanir þjóta hjá fatta ég að kannski er lífið ekki jafn erfitt og ég hélt.  Ég á fína kunningja(þó ég hef ekki hitt suma í meira en hálft ár), bý á fínum stað og er í fínni vinnu.  Kannski ekki að "Livin' la vida locha" en samt...

 Þannig að ég segi bara magno cum gaudio: Njótið nú dagsins litlu lömbin mín og ekki gleyma að spenna beltin.Glottandi

PS. rosa rubicundior,
      lilio candidior,
      omnibus formosior,
      semper in te glorior

Veritas et AequitasElliši Jónsson

Ég var að rifja upp áðan hvað myndin "The boondock saints" er ótrúlega góð mynd.  Hún fjallar í stuttu máli um tvo Írska bræður sem ákveða einn daginn að taka lögin í eigin hendur.  Blóðhefnd(Vendetta) í styttra máli. 

"Now, we must all fear evil men, but there is another kind of evil, which we must fear most, and that is, the indifference of good men."   Þetta er alveg rétt hjá prestinum.  Skeitingsleysi góðra manna er stórhættulegt.

And Shepherds we shall be, for Thee my lord for Thee.
Power hath decended forth from Thy hand,
that our feet may swiftly carry out Thy command.
So we shall flow a river forth to Thee,
and teeming with souls shall it ever be,
In Nomine Patris, et Filii, et Spiritus Sancti.
Bara að enda á svölum nótum(gerið svona svart yfir textann til að sjá allt)

Inngangur....Elliši Jónsson

cacoethes scribendi á vel við núna...

Þegar ég kvaddi Ísafjörð 23. Ágúst 2005 eftir 16 ára dvöl þar, hófst nýr kafli í lífi mínu.  Smásveitarstrákurinn var fluttur í stóru borgina.  Ég flutti í blokkaríbúð í Rvk nálægt Kringlunni.  Ég stunda samviskusamlega nám við Fjölbrautarskólann við Ármúla, sem er by the way eðal skóli, og una mér bara vel þar.

Ég er á félagsbraut, því náttúrufræði er ömurleg, og er að fíla söguna bestSvalur.  Ég er ekki mikið partý-ljón og drekk ekki. 

Akkurat núna vinn ég hjá póstinum uppá Höfða í aðalstöðvunum.  Ég er að flokka póst(úúúú...spennandi).

Пролетарии всех стран,Elliši Jónsson

Undarlegt hvað allt í heiminum er hverfullt; það sem áður var, er ekki lengur eins. 

condemnant quod non intellegunt (Þeir fordæma sem skilja ekki).

Fyrir ekki svo all löngu endurnýjaði ég kynni mín við frænda sem ég hafði ekki talað við í cirka 2 ár og ekki séð í góða 7-8 mánuði.  Það var sameiginlegur vinur sem hvatti hann til að brjóta odd af oflæti sínu og tala við mig. 


Ég eins þver og ég er trúði honum ekki til að byrja með, hélt að þetta væri aðeins næsti liður í enn stærra plotti.  En á endanum viðurkenndi ég að allt í heiminum er jú hverfullt, hlutir breytast, þar á meðan menn.

bella gerant alii

Alea iacta est...Elliši Jónsson

Daginn(30 min seinna)

Það er alveg undarlegt hvað íslensk ungmenni djamma og djúsa mikið stundum, einnig tala þau mikið af ensku slettum í skólanum og á Msn.  Það sem var áður land sem var fullt af afkomendum víkinga sem sátu í torfkofunum og hlustuðu á kvæði og sögur á kvöldin en unnu eins og óðir væru á daginn, er núna orðið að landi sem er fullt af ofdekruðum djamm svömpum sem gera ekki handtak.  Góð þróun?

Við sem vorum svo hrein og óflekkuð fyrr á öldum, en erum núna útötuð í skíti nútímamenningarinnar.  Sjónvarp og tölvur eru gott og skemmtilegt upp að vissu marki, sem ég er hræddur um að sé löngu rofið.  Allt of mikið sjónvarpsát hefur stuðlað að offitu og aumingjaskap.

Rísum upp gegn enskuslettum, aumingjaskap, of miklu sjónvarpsglápi og hefjum nýtt líf, betra líf.
 

A bene placito...Elliši Jónsson

Ég er eins og allir hinir sem vilja láta flokka sig eins og sauðfé, þ.e.a.s ég vill fylgja tískustraumum(að ákveðnu marki Glottandi).  www.bloggar.is er nýjasta æðið og hef ég því ákveðið að fljóta með straumnum og prófa þetta undratæki. 

Ég geri mér grein fyrir því allt frá fyrstu mínútunni að þessi síða verður aldrei vinsæl né flott, so be it.  Ég ætla samt að blogga hér "reglulega" um lífið og er pent sama á áhugaleysi annara.

Ps. ef ykkur endilega langar til að skrifa athugasemd...endilega gerið það

Mazeltov

Sķša 14 af 14

Gagnasafn

Könnun

Įriš 2006 var...?